laugardagur, apríl 30, 2005

Er í miklum heilabrotum núna í sambandi við vef sem ég er að búa til, en ætla ekkert að fara að tíunda neitt vandamálið hérna heldur linka ég bara á hann þegar ég er búinn með hann. Eitthvað farið að birta yfir framtíðinni finnst mér, kannski er það bara af því að ég er að klára skólann. Mér finnst það eitthvað svo óraunverulegt að ég sé bara búinn í skólanum, loksins klárar maður eitthvað til tilbreytingar.
Það er víst partý í kvöld hjá gömlum vini, þannig að það eru spariföt og læti, langt síðan ég hef farið í svoleiðis partý.

|