
Dr. Julius Hibbert er heimilislæknir Simpsons fjölskyldunnar.
Það er Harry Shearer sem ljáir honum rödd sína.
Hann er góðhjartaður fjölskyldulæknir, snillingur, útskrifaður
úr Johns Hopkins University læknaskólanum og meðlimur í
Mensa, sem er félagsskapur fólks með háa greindarvísitölu.
Að auki er hann einn af fáum svörtu karakterum í seríunni.
Hibbert er einn af fáum karakterum í þáttunum sem myndu
teljast „eðlilegir“, nema að hann á það til að hlæja á óviðeigandi
stöðum. Hann á það einnig til að koma með kjánalegar lausnir á
læknisfræðilegum vandamálum, eins og þegar Homer missti
þumalputtann, sagði Hibbert honum að „putta tryggingin“ hans
myndi ekki greiða fyrir að græða hann aftur á, þar sem þumall
væri ekki eiginlegur putti og bauðst til að taka hinn af til að það
yrði jafnvægi.
Dr. Hibbert á konu, sem heitir Bernice. Saman eiga þau þrjú börn.
Þegar þau sjást saman minna þau mikið á Cosby Show, sem var
vinsælt á níunda ártug síðustu aldar.
Það er gefið í skyn að „Bleedig Gum Murphy“ sé týndi bróðir hans.
Einnig er hann sláandi líkur yfirmanni munaðarleysingjahælisins í
Shelbyville.
Það er stefnan hjá mér að taka fleiri karaktera fyrir og gera þeim góð skil í framtíðinni.
Eins og flestir sem mig þekkja vita, þá er ég örugglega einn af dyggari aðdáendum Simpsons og ég myndi aldrei láta neinar upplýsingar frá mér um Simpsons sem ekki væru réttar. Svo bara vona ég að einhver annar hafi gaman af þessu en ég.

<< Home