Ég er að gera tímarit sem lokaverkefni í skólanum hjá mér og ég var að skrifa að því að mér finnst, bara helvíti áhugaverða grein um juggling, söguna og áhrif á heilsuna. Ég ákvað að deila henni með þeim sem nenna að lesa. Kannski er hún bara áhugaverð fyrir mig.
Juggling
Sagan
Juggling á sér langa og athyglisverða sögu. Það á rætur sínar að rekja til forn - Kínverja, Tíbeta og Írana, en þar var juggling notað í helgisiðum. Elsta mynd af athöfninni fannst í gröf óþekkts prins í Egyptalandi, en hún á að vera frá árunum 1994–1781 fyrir Krist. Prestar notuðu juggling til að spá fyrir um framtíðina og til að bægja hættum frá. Seinna varð juggling vinsælt meðal Grikkja og Rómverja, en þar voru jugglarar kallaðir „ventilatores“ (hnífakastarar), eða „pilari“ (bolta leikmaður). Töframenn tóku líka juggling upp á arma sína, þar sem þeir juggluðu þannig að þeir sýndu ekki alla sína hæfileika strax, heldur héldu einu bragði þangað til síðast, þegar þeir voru búnir að byggja það nóg upp. Athyglisverð staðreynd er að andstætt við það sem áður var talið, eru það konur sem fyrst er lýst sem jugglurum í Grikklandi, Egyptalandi og Kyrrahafseyjum. Það var ekki fyrir en seinna, þegar Evrópskir trúðar og fjöllistafólk fór að juggla, að það snerist yfir í að það voru aðallega karlmenn sem voru jugglarar.
Saga þessara fjöllistafólks á miðöldum er mjög götótt, vegna þess að þeir ferðuðust mikið um, svolítið eins og sígaunar og þess vegna var erfitt að fylgjast með ferðum þeirra. Reyndar eru engar skráðar heimildir um nokkurn einstakling (nafngreindan) frá miðöldum. Það var á miðöldum sem juggling fór að skilja sig að frá töframönnum og fóru jugglarar að sýna mjög opinskátt kunnáttu sína, þ.e.a.s. þeir skildu ekki eitt bragð eftir til að sýna síðast. Þessir flökkulistamenn fóru að komast í þjóðsögur og ævintýri og er frægast af þeim „Le Jongleur de Notre Dame“, eða „Jugglari frúarinnar“. Í þessari sögu segir frá jugglara sem stoppar við í Notre Dame kirkjunni og sér þar fallega styttu af Maríu Mey. Hann ákveður þá að þar sem hann hafi ekki mikið að bjóða henni, skuli hann sýna henni listir sínar í að juggla (þó svo að hann hafi líka séð það að mikil lofthæð kirkjunnar bauð upp á mikla möguleika). Meðan hann jugglar, kemur prestur kirkjunnar og er hann mikið hneykslaður á þessum keilu-kastandi vini okkar. Hann tekur til við að henda honum út, þegar hann tekur eftir því að styttan af Maríu er brosandi. Það má því með sanni segja að juggling sé skemmtilegt að horfa á fyrir alla áhorfendur. Þótt undarlegt megi virðast, var gerð ópera úr þessari sögu, og er hún sýnd enn þann dag í dag.
Af myndum að dæma, sjáum við það að það sem var aðallega notað til að juggla, voru kyndlar, boltar og hnífar. Keisarinn af Hudustan lýsti reyndar jugglurum sem notuðu tréhringi árið 1528. Ef þú hefðir búið á eynni Tonga á sautjándu og átjándu öld, hefðir þú sennilega notað sítrónur eða aðra ávexti til að læra þessa list.
Juggling hélt áfram að vera vinsælt skemmtiatriði í sirkusum, hjá kóngafólki og götulistamönnum í margar aldir. Í kringum 1970 greip um sig mikið juggling æði í Evrópu sem varð til þess að margir lærðu listina, en í kringum 1980 var æðið orðið frekar meira í Ameríku og sér ekki fyrir endann á því.
Öryggisreglur
Það fer auðvitað eftir því hverju er verið að kasta hvaða öryggisráðstafiandi maður þarf að grípa til. Ekki er æskilegt að óvanur maður kasti til dæmis logandi kyndlum eða flugbeittum hnífum af augljósum ástæðum. Hins vegar er gott að æfa sig með keilum eða boltum til að byrja með. Það er að vísu ekki alveg hættulaust að kasta keilum, þar sem það getur verið mjög vont að fá þær í sig, en það er eitthvað sem er kannski bara meira vont heldur en hættulegt. Mjúkir boltar eru hins vegar algerlega hættulausir og ættu allir að reyna við þá.
Góð áhrif á heilsuna
Juggling er mjög gott fyrir samhæfingu handar og augna, það er líka mjög mikil hreyfing falin í því og eru jugglarar yfirleitt í góðu líkamlegu formi. Juggling eykur hjartslátt og súrefnisflæði í vöðva, þar sem það er mikil hreyfing í gangi. Það er einnig gott sem íhugun, þar sem enginn lærir þessa list með óþolinmæði. Það þjálfar líka viðbrögð sem fólk sem ekki jugglar hefur ekki. Til dæmis gæti það verið mikil áskorun fyrir óreyndan jugglara að grípa hrátt egg, á meðan reyndur jugglari á auðvelt með að grípa egg sem er kannski kastað til hans án viðvörunar (án þess að brjóta það).
Eins þversagnarkennt og það kann að hljóma þá virkar juggling mjög róandi á hugann, meðan það þjálfar líkamann og hefur það eitthvað með það að gera að það er róandi að vera að juggla með sama mynstrinu og sjá hlutina fara upp og niður. Þessi áhrif eru næstum því dáleiðandi og geta tekið mann frá stressi hversdagsins í smá tíma þar sem athygli jugglarans er öll á því sem hann er að juggla. Þetta hefur samt ekki óæskilegar aukaverkanir, eins og til dæmis lyf.
Eins og fram kemur hér að framan hefur þetta jákvæð áhrif á heilsu manna, en juggling virkar best þegar það er gert innan um fólk. Búnaðurinn er ódýr, eða í sumum tilfellum ókeypis, þó svo að til sé mjög dýr búnaður. Búnaðurinn er léttur og auðvelt að flytja. Það er eitt besta „party trikk“ sem til er að geta jugglað, þar sem það er gott til að brjóta ísinn. Í flestum tilfellum eru jugglarar vinalegt fólk og yfirleitt boðnir og búnir í að veita byrjendum góð ráð.
Leikurinn
Sem leikur er juggling alger snilld. Fyrir utan góðu áhrifin á heilsuna sem upp er talið hér fyrir framan, er þetta líka góð leið til að kynnast nýju fólki og auka sjálfstraust.
Það að læra að juggla fyrir barn (eða fullorðinn) hjálpa við allan lærdóm, þar sem í „hinum þróaða heimi“ þar sem börn eyða miklum tíma fyrir framan sjónvarpið, geta þau þróað hjá sér athyglisbrest, eða þau ná ekki að halda einbeitningu í langan tíma og getur það háð þeim í námi. Skortur á einbeitningu og almennum leiðindum. Hvar sem er í heiminum þjálfar sá sig, sem jugglar, í andlegri einbeitningu, sem hefur síðan aftur áhrif á skírleika og rökhugsun.
Að lokum eru ein rök sem ekki hafa komið fram hér að framan og kannski eru það einmitt sterkustu rökin fyrir því að taka þessa iðju upp, en þau eru einmitt að þetta er gaman.

<< Home