Ég er búinn að vera mjög latur við bloggið þessa dagana vegna þess að ég flutti höfuðstöðvarnar úr Garðabænum, svolítið mikið nær skólanum (nánar tiltekið Hverfisgötu) og þar er ekkert net. Mér er einhvernvegin í blóð borið að búa í miðbænum.
Skólinn er farinn að éta upp svolítið mikið af mínum tíma núna en það er allt í lagi vegna þess að hann er svo skemmtilegur. Ég var allt í einu að átta mig á því á mánudaginn að í vor kem ég til með (vonandi) að útskrifast þar sem ég fæ húfu og allt. Ekki hefði mér dottið það í hug fyrir nokkrum árum að mér ætti eftir að takast það einhvern tíman, en undur og stórmerki gerast enn.

<< Home