þriðjudagur, desember 07, 2004

Það er eins og allt fólkið sem ég tala við á MSN sé bara horfið eða allavegana aldrei við á sama tíma og ég. Ekkert endilega að það sé búið að vera eitthvað meira að gera hjá mér en venjulega. Ég sé fram á það að ég komi til með að eiga fyrir bílprófinu og mun ég setja hér hvernig þetta gengur allt fyrir sig.

Fyrir þá sem vita það ekki þá missti ég bílprófið fyrir 2 árum og þarf að taka það aftur, en sá ferill er einmitt að fara í gang um þessar mundir. Ég ætla að koma með ferilinn hér á þessari síðu bara vegna þess að það er gúrkutíð í mínu lífi um þessar mundir og þetta er alveg jafn gott eða slæmt efni og hvað annað.

1. Kafli

Hringdi í ökukennara í síðustu viku bara til að spjalla við hann og tékka á þessu og næsta stig er semsagt að fara á lögrelglustöðina og sækja um að fá að taka prófið, en það tekur nokkra daga frá því að ég sæki um þangað til ég get farið í bóklega prófið (já, alveg rétt, ef það er einhver þarna úti sem getur lánað mér bókina sem maður á að lesa fyrir bílpróf þá er það vel þegið).

Ég fór á föstudaginn (tók mér frí í vinnunni og allt) niðrá lögreglustöðina, en þessi hluti hennar er víst fluttur í Borgartún. Þegar þangað var komið var mér tilkynnt það að ég þyrfti læknisvottorð sem þyrfti að fylgja með umsókninni. Þessi ferð var semsagt ekkert sem eitt símtal hefði ekki getað gert. Lærði það semsagt af reynslunni að ég hringi frekar næst heldur en að taka mér frí í vinnunni og æða á staðinn þar sem það er tímafrekt að vera háður strætó.

Hringdi og pantaði tíma hjá lækninum fyrir vottorðið og fæ hann á föstudaginn.

|