fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Aldrei þessu vant fór ég ekkert að vinna í dag (þar sem ég fer yfirleitt að vinna eftir skóla á fimmtudögum) en fór þessvegna í kaffi til frænda niður á Baronsstíg. Við vorum eitthvað að sötra á kaffinu og vorum með blöðin fyrir framan okkur og ég rek augun í auglýsingu frá BT þar sem þeir eru að auglýsa tölvukaupalán. Ég segi við frænda að mig langi nú svolítið mikið í svona fartölvu. Það var nú bara ákveðið þá og þegar að fara bara niður í Kringluna með næsta strætó og kaupa bara svona græju fyrst að þetta væri svona auðvelt eins og stóð í auglýsingunni.
Allavegana fór ferðin þannig að ég keypti mér bara nýja fartölvu og þetta var bara eins auðvelt og í auglýsingunni.

Annars er ég búinn að vera að tengja digital afruglara fyrir hina og þessa vini hans pabba þar sem hann gubbaði því auðvitað útúr sér í vinnunni að ég gæti klórað mig frammúr því að tengja svona.

|