Jæja þá er mánuðurinn hálfnaður og ég orðinn blankur strax. Þoli ekki þegar þetta gerist. Það er eins og það sé eitthvað dýrara að vera Jónas heldur en einhver annar, en hey, það er kannski bara það sem ég þarf að borga fyrir að vera ég. Helgin var mjög róleg þar sem ég fór varla útúr húsi. Var bara duglegri við að gera eitthvað fyrir skólann í staðin, enginn mórall semsagt eftir þessa helgi. Bauð vinunum í mat í kvöld þar sem soðin var ýsa og kartöflur. Þetta var síðan borðað með gæða rúgbrauði og mjólk. Ekki merkilegt en sló samt í gegn hjá svöngum mögum. Hefði svosum geta verið með hvað sem er þessvegna.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com

<< Home