miðvikudagur, mars 16, 2005

Páskar framundan með blóm í haga og betri tíð. Fór í Endurvinnsluna í gær með sneizafulla kerru af flöskum og dósum, ég er semsagt hættur að drekka flöskubjór vegna þess að flöskurnar eru þungar.

Fer í vettvangskönnun í Morgunblaðið með skólanum. Mikið er ég feginn að ég sé að verða búinn með þetta nám. Þó svo að það sé gaman í skólanum þá þarf maður að herða sultarólina meira en góðu hófi gegnir. Ég auglýsi hér með eftir samning í prentsmíði. Ok, geri mér grein fyrir því að þetta er kannski ekki alveg rétti staðurinn til að auglýsa eftir vinnu.

|