
Það er Joe Mantegna sem talar fyrir Fat Tony. Fat Tony er mafíósinn í Sprigfield.
Hans rétta nafn er sagt vera WilliamWilliams í einum þáttanna, þegar Bart var að
vinna fyrir hann í „Löglega viðskiptamanna klúbbnum“. Í enn öðrum þætti sagði
Frankie „The squealer“ að hans rétta nafn væri Marion. Fat Tony er samblanda af
endalausum mafíósum í bíómyndum og sjónvarpsþáttum sem úir og grúir af í
bandarísku sjónvarpi.
Meðal félaga hans eru : Joey, Legs, Louie og stundum kemur Johnny tightlips til
sögunnar.
Það sem hann hefur lagt sér fyrir hendur er t.d. að selja skólakrökkum rottumjólk
og einnig rak hann ólöglega flugeldaverksmiðju útí skógi og Bart og Milhouse fundu
hana. Einusinni fór hann í stríð við Yakusana vegna þess að það voru hagsmunaárekstur
í saltkringlubransanum. Fat Tony hermir í einum þættinum eftir Marlon Brando,
þegar hann tekur appelsínu í munn trikkið úr Guðföðurnum, öðrum til skemmtunar.
Svo skemmtilega vill til að Mantegna lék einmitt í þriðju Guðföður myndinni, sem
Fat Tony segir í sama þætti að hafi ekki verið eins góðar og hinar tvær.

<< Home