mánudagur, október 10, 2005

Þegar piparkökur bakast
Kökugerðarmaður tekur
Fyrst af öllu steikarpottinn
Og eitt kíló margarín
Bræðir yfir eldi smjörið
En það næsta sem hann gjörir
Er að hræra kíló sykurs
Saman við það heillin mín.

Þegar öllu þessu er lokið
Takast átta eggjarauður
Maður þær og kíló hveitis
Hrærir og í potti vel.
Síðan á að setja í þetta
Eina LITLA TESKEIÐ pipar
Svo er þá að hnoða deigið
Og breiða það svo út á fjöl.

|