Þau gleðilegu tíðindi áttu sér stað í gærkvöldi, fljótlega uppúr kvöldmat, að fólkið á efri hæðinni gerði sér ferð út í garð og tók þetta risastóra ferlíki sem var úti í garði í sundur. Ferlíkið sem ég er að tala um lítur út eins og þyrlupallur, nema þegar þetta ferlíki er í notkun þá er meiri hávaði í því heldur en þyrlupalli. Ég er semsagt að segja ykkur að trambolínið sé farið úr garðinum heima og er ég þessvegna með bros á vör núna.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com

<< Home