sunnudagur, nóvember 28, 2004

Var í skírnarveislu hjá systir minni sem var að láta skíra litlu stelpuna sína. Hafdís Arna var hún látin heita í höfuðið á mömmu okkar.

Kíkið endilega neðst á síðuna, setti leik þangað.

|

Random
You are a Random cat! Also known as an alley cat
or a mutt. You aren't given to high-falutin'
ways, but you're accessible and popular.
People love you for who you are, not what you
are.


What breed of cat are you?
brought to you by Quizilla

|

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Jæja góðir hálsar eða góður háls, þá er loksins komið að því að ég setji inn færslu á þessa blessuðu blogg síðu mína.
Núna er svolítið mikið að gera í skólanum og hægt að skýla sér endalaust bak við það ef maður er latur í einhverju, þá segir maður bara : ,,Já en það er svo mikið að gera í skólanum að ég hef ekki haft tíma í að gera þetta". Ekki það að ég hafi eitthvað notað það mikið en það hefur komið fyrir.
Vaknaði í gærmorgun svolítið veikur og mætti ekkert í skólann þann daginn. Það er ekkert gaman að vera veikur, ég mundi sko skipta á því fyrir ærlegan vinnudag hvenær sem er.
Annars er ég kominn á línu í skólanum sem ég ætlaði upphaflega ekki að fara, en eins og segir í páskaeggjunum : ,,Enginn veit sína ævina fyrr en öll er".

|

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Brrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

|

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Ég var ekki nema 2 klukkutíma á leiðinni heim úr skólanum í dag sökum veturs konungs sem tafði alla umferð eins og honum einum er lagið. Merkilegt hvað allt umhverfið í kringum mann breytist gjörsamlega þegar það er kominn snjór.
Núna er sá tími annarinnar sem manni finnst maður vera að drukkna í verkefnum og sér ekki frammá að ná að klára þetta allt, en einhvernvegin tekst þetta vonandi á endanum.



Take the quiz: "Which American City Are You?"

Cleveland
You are blue collar and Rock n Roll. You Work hard and party harder.

|

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Djöfull var kalt og leiðinlegt veður í dag, snjókoma og allt og ég að malbika.

Arafat dó í dag og verður hann jarðaður í Kairo, Egiptalandi. Ekki veit ég af hverju Egiptalandi, en ef einhver af ykkur veit það þá er comment vel þegið. Það er vonandi að dauði hans verði til þess að friðarviðræður þarna milli Ísrael og Palestínu.

Það er nú ekki snjókoma þar. Hehehe, ekkert smá súr yfir því að það sé brostið á með vetri, oh well, same shit different day.

Er að horfa á ljónaþátt á national geographic, mögnuð dýr, mjög grafískar myndir þarna, ljónin alveg sýnd drepa og éta og allt fullt af blóði og svona. Þetta er auðvitað bara náttúran að viðhalda hringrásinni. Þarna sannast víst málshátturinn "eins manns dauði er annars manns brauð" eða í þessu tilfelli ljón og ekki brauð heldur kjöt,

Það er kominn svolítill skólaleiði í mig núna, en ég vona að ég geti hrist hann af mér í jólafríinu, sem er alveg skelfilega stutt í, einmitt núna þarf að fara að setja í fluggírinn í verkefnavinnu þar sem aðeins 2 vikur eru eftir af þessari önn.

|

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Víkingar. Hér á öldum áður voru uppi á norðurhveli jarðar menn sem kallaðir voru víkingar. Þessir menn náðu allgóðum tökum á sjófærni og vöktu aðdáun annarsstaðar í heiminum sökum þess. Þessir menn sigldu um höfin sjö rænandi, ruplandi og nauðgandi og voru til almenns ama hvert sem þeir fóru. Einhvernveginn hefur merking orðsins snúist upp í andhverfu sína og er merking þess í dag notað yfir hraustmenni karlmenni mikil. Í dag er það fínt að vera kallaður víkingur.
Þessir víkingar eiga ekkert skilt við friðsama fólkið sem gat kallast almennir borgarar sem ekkert er skrifað um í Brennu-Njáls-Sögu eða Gísla-Sögu-Súrssonar. Fólkið sem fann Ameríku þegar það var að leita betri haga til að búa í en ekki valda útlendingum höfuðverk.

Ég var skammaður í dag fyrir að vanrækja þessa bloggsíðu og vona ég að þessi færsla bæti úr því.

|

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Aldrei þessu vant fór ég ekkert að vinna í dag (þar sem ég fer yfirleitt að vinna eftir skóla á fimmtudögum) en fór þessvegna í kaffi til frænda niður á Baronsstíg. Við vorum eitthvað að sötra á kaffinu og vorum með blöðin fyrir framan okkur og ég rek augun í auglýsingu frá BT þar sem þeir eru að auglýsa tölvukaupalán. Ég segi við frænda að mig langi nú svolítið mikið í svona fartölvu. Það var nú bara ákveðið þá og þegar að fara bara niður í Kringluna með næsta strætó og kaupa bara svona græju fyrst að þetta væri svona auðvelt eins og stóð í auglýsingunni.
Allavegana fór ferðin þannig að ég keypti mér bara nýja fartölvu og þetta var bara eins auðvelt og í auglýsingunni.

Annars er ég búinn að vera að tengja digital afruglara fyrir hina og þessa vini hans pabba þar sem hann gubbaði því auðvitað útúr sér í vinnunni að ég gæti klórað mig frammúr því að tengja svona.

|

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Það var framið morð í Kópavoginum fyrir nokkrum kvöldum þar sem það er nokkuð ljóst að morðinginn hafði kæft kærustu sína og hringt síðan í prest og tengdaforeldra sína um leið og hann var búinn. Pabbi stelpunnar segist ekki bera neinn kala til árásarmannsins þar sem hann hafi reynst sér eins og sonur. Ég er reyndar ekki búinn að lesa mér til um málið en eins og þetta lítur út frá mínum bæjardyrum þá var maðurinn, sem fæddur er 1975, allsgáður og með réttu ráði þegar verknaðurinn var framinn. Ég er ekki að segja það að það sé eitthvað réttlætanlegt að myrða eða misþyrma annarri manneskju þegar maður er blindfullur eða útúrdópaðu, en mér finnast samt önnur formerki á því.
Hann hefur þurft að horfast í augu við fórnarlambið meðan líf hennar fjaraði út og flokkast þessvegna, að mínu mati, í flokk hættulegustu glæpamanna sem til eru.

|

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Það eru litlu hlutirnir sem gefa lífinu gildi, en það eru líka til litlir hlutir sem fara alveg óstjórnlega í taugarnar á mér. Ég geri mér grein fyrir því að það er ástæðulaust að vera að pirra sig á svona hlutum en þeir fara engu að síður í mínar fínustu. Hérna kemur listi yfir þessa hluti....


Að þurfa að vakna of snemma.

Að þurfa að fara að sofa of snemma.

(helst auðvitað í hendur við það fyrra)

Leiðinlega sjónvarpsdagskrá.

Að hafa ekki nógan tíma.
Fólk sem kreystir tannkremstúpuna fremst.

Fólk sem gerir holu í smjörið.

Fólk sem smjattar.

Fólk sem setur ekki mjólkina inní ísskáp.

Fólk sem sturtar ekki niður.


Ég geri mér grein fyirr því að þetta er eitthvað sem verður bara að sætta sig við og ég þarf bara að finna æðruleysi hjá sjálfum mér til þess að þola þessa hluti, en mikið væri lífið nú auðveldara án þeirra.

|