Jæja, þá er kominn tími til að sinna þessu blessaða bloggi mínu og láta vita að ég sé ennþá lifandi.
Ég keypti mér eðaldrossíu á dögunum og varð Volvo fyrir valinu og þar sem ég hef ekki átt bíl í ca. 3 ár þá er ég að finna fyrir frelsinu sem fylgir því að eiga bíl og það er ljúft.
Allt virðist vera að ganga upp þessa dagana, ég er sennilega búinn að finna mér íbúð sem ég flyt inn í með vorinu. Kannski er þetta bara ártíðarbundin bjartsýni sem ég er að upplifa núna en allavegana þá er bjartsýnin fyrir hendi.
Bara mánuður eftir þangað til ég tek sveinsprófið og sumarið að koma. Það er semsagt bjartir tímar með blóm í haga framundan.

<< Home