Þau gleðilegu tíðindi áttu sér stað í gærkvöldi, fljótlega uppúr kvöldmat, að fólkið á efri hæðinni gerði sér ferð út í garð og tók þetta risastóra ferlíki sem var úti í garði í sundur. Ferlíkið sem ég er að tala um lítur út eins og þyrlupallur, nema þegar þetta ferlíki er í notkun þá er meiri hávaði í því heldur en þyrlupalli. Ég er semsagt að segja ykkur að trambolínið sé farið úr garðinum heima og er ég þessvegna með bros á vör núna.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com
föstudagur, ágúst 12, 2005
fimmtudagur, ágúst 11, 2005
Litla systir er semsagt að fara að gifta sig á laugardaginn, þannig að maður verður í sínu fínasta pússi þá. Tillögur að brúðkaupsgjöf eru vel þegnar, en ég á það alveg eftir að kaupa það þar sem ég er þessi "á síðustu stundu týpa".
Þá eru flestir í fjölskyldunni minni búnir að gifta sig, nema auðvitað ég. Efast um að það verði úr þessu.

