mánudagur, mars 28, 2005

Stolið hjá : http://www.blog.central.is/s/staur_haus/index.php?page=viewPage&id=56923


Vandamálahandbók
bjórdrykkjumannsins


Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fölur og
tær.
Orsök: Glasið er tómt.
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.

Vandamál: Drykkjan veitir enga ánægju, bjórinn er óvenjulega bragðlaus, fremri hlutinn á þér er blautur.
Orsök: Munnurinn hefur ekki verið opinn meðan þú varst að drekka EÐA glasið hefur verið sett upp við rangan andlitshluta.
Viðbrögð: Kauptu annan bjór og æfðu þig fyrir framan spegil. Drekktu eins marga og þörf er á til að byggja upp fullkomna tækni.

Vandamál: Fætur blautir og kaldir
Orsök: Glasinu hefur verið haldið á hvolfi
Viðbrögð: Snúðu glasinu við þannig að "opni" endinn snúi upp.

Vandamál: Fætur blautir og heitir
Orsök: Slæm stjórn á þvagblöðrunni
Viðbrögð: Labbaðu upp að næsta hundi, og kvartaðu svo við eigandann að hundurinn sé illa upp alinn. Krefstu þess að fá bjór í skaðabætur

Vandamál: Gólfið er þokukennt
Orsök: Þú ert að horfa í gegnum botninn á tómu glasi
Viðbrögð: Fáðu einhvern til að kaupa annan bjór handa þér.

Vandamál: Gólfið sveiflast
Orsök: Of mikil ókyrrð í loftinu, sennilega vegna úrslita sem hafa orðið í einhverju spili á barnum
Viðbrögð: Settu kústskaft niður bakhlutann á skyrtunni.

Vandamál: Gólfið hreyfist
Orsök: Það er verið að bera þig út
Viðbrögð: Reyndu að komast að því hvort að það sé verið að fara með þig á annan bar. Ef svo er ekki, öskraðu þá að það sé verið að ræna þér.

Vandamál: Veggurinn á móti þér er þakinn loftklæðningu og ljósaperum
Orsök: Þú hefur dottið aftur fyrir þig
Viðbrögð: Ef glasið þitt er fullt og enginn stendur á hendinni á þér, vertu þá bara ennþá á gólfinu og haltu áfram að drekka. Ef ekki, fáðu þá einhvern til að hjálpa þér að standa upp og haltu þér vel í barborðið.

Vandamál: Allt er orðið dimmt, munnurinn á þér er fullur af sígarettustubbum
Orsök: Þú hefur dottið fram fyrir þig.
Viðbrögð: Sjá fyrir ofan

Vandamál: Allt er orðið dimmt
Orsök: Það er búið að loka barnum
Viðbrögð: Hræðsla!!!!!

Vandamál: Þú vaknar og finnur að rúmið þitt er kalt, hart og blautt; þú sérð ekkert inni í svefnherberginu.
Orsök: Þú hefur sofnað í göturæsinu.
Viðbrögð: Kíktu á klukkuna til að gá hvort að það sé búið að opna barina. Ef ekki, reyndu þá að sofa aðeins lengur.


|

miðvikudagur, mars 23, 2005

Páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí, páskafrí.

|

föstudagur, mars 18, 2005

Léttir dauðans, búinn að skila bók sem ég er búinn að vera að gera í skólanum og þarf ekkert að vera að pæla neitt meira í henni, nú tekur við páskafrí og eftir páska taka bara við ný verkefni. Mikið er ég feginn að vera búinn með þessa bók, hún kom vel út. Vona að ég geti bara fengið einhverja vinnu í þessu fríi.

|

miðvikudagur, mars 16, 2005

Páskar framundan með blóm í haga og betri tíð. Fór í Endurvinnsluna í gær með sneizafulla kerru af flöskum og dósum, ég er semsagt hættur að drekka flöskubjór vegna þess að flöskurnar eru þungar.

Fer í vettvangskönnun í Morgunblaðið með skólanum. Mikið er ég feginn að ég sé að verða búinn með þetta nám. Þó svo að það sé gaman í skólanum þá þarf maður að herða sultarólina meira en góðu hófi gegnir. Ég auglýsi hér með eftir samning í prentsmíði. Ok, geri mér grein fyrir því að þetta er kannski ekki alveg rétti staðurinn til að auglýsa eftir vinnu.

|

fimmtudagur, mars 10, 2005

Skilavikan stóra í skólanum núna og nóg að gera, þó svo að skilin séu eitthvað að láta á sér standa. Á að vera búinn að gera vefsíðu, set tengil á hana til hliðar, fyrir þá sem hafa áhuga á því. Ekki alveg búinn að fullklára hana samt.

|