fimmtudagur, desember 30, 2004

Jæja, þá er vinnu lokið sem ég ætlaði mér að vinna í jólafríinu og einnig náði ég bílprófinu í annari tilraun. Er farinn að hlakka svolítið til að fara í skólann aftur og takast á við eitthvað sem er einhver áskorun í.

Ætla að halda matarboð hérna á gamlárs þar sem vina elítunni er boðið til borðs og einhver skemmtilegheit á eftir. Sé allavegana frammá að vera ekki veikur á gamlárskvöld og það er nú gott.

|

föstudagur, desember 24, 2004

Aðfangadagur og ég er heima veikur. Alveg langbesti tíminn til að vera veikur.....eða þannig.

Ekki ennþá kominn með bílpróf vegna þess að ég féll í bóklega prófinu.........Huh ! ég varð fúll....

|

þriðjudagur, desember 07, 2004

Það er eins og allt fólkið sem ég tala við á MSN sé bara horfið eða allavegana aldrei við á sama tíma og ég. Ekkert endilega að það sé búið að vera eitthvað meira að gera hjá mér en venjulega. Ég sé fram á það að ég komi til með að eiga fyrir bílprófinu og mun ég setja hér hvernig þetta gengur allt fyrir sig.

Fyrir þá sem vita það ekki þá missti ég bílprófið fyrir 2 árum og þarf að taka það aftur, en sá ferill er einmitt að fara í gang um þessar mundir. Ég ætla að koma með ferilinn hér á þessari síðu bara vegna þess að það er gúrkutíð í mínu lífi um þessar mundir og þetta er alveg jafn gott eða slæmt efni og hvað annað.

1. Kafli

Hringdi í ökukennara í síðustu viku bara til að spjalla við hann og tékka á þessu og næsta stig er semsagt að fara á lögrelglustöðina og sækja um að fá að taka prófið, en það tekur nokkra daga frá því að ég sæki um þangað til ég get farið í bóklega prófið (já, alveg rétt, ef það er einhver þarna úti sem getur lánað mér bókina sem maður á að lesa fyrir bílpróf þá er það vel þegið).

Ég fór á föstudaginn (tók mér frí í vinnunni og allt) niðrá lögreglustöðina, en þessi hluti hennar er víst fluttur í Borgartún. Þegar þangað var komið var mér tilkynnt það að ég þyrfti læknisvottorð sem þyrfti að fylgja með umsókninni. Þessi ferð var semsagt ekkert sem eitt símtal hefði ekki getað gert. Lærði það semsagt af reynslunni að ég hringi frekar næst heldur en að taka mér frí í vinnunni og æða á staðinn þar sem það er tímafrekt að vera háður strætó.

Hringdi og pantaði tíma hjá lækninum fyrir vottorðið og fæ hann á föstudaginn.

|

mánudagur, desember 06, 2004

Fannst þetta sniðug niðurstaða og ákvað að skella henni hingað.



Take the quiz: "WHAT RELIGION BESTS SUITS YOU?"



Category Unknown
You don't fit into any of the above categories, so perhaps before you get angry or confused, check what other religion(s) you scored the highest on. For example, you might be a Christian-Pagan, or a Discordian-Wiccan. Just use a bit of logic. However, according to this test, you're simply 100% YOU. You don't fit into any of the world's boxes.

|

Einkunnir farnar að týnast inn og bara gott um það að segja ennþá. Á nú svosem ekkert von á einhverju kjaftshöggi nema kannski í einu fagi sem mér gekk illa í prófinu. Annars er ég mjög feginn að vera kominn í smá frí frá skólanum og geta farið að vinna og eignast smá aur og kannski bílpróf og svona.

Var í jarðarför í síðustu viku og fer í aðra sennilega í næstu. Stundum er bara eins og dauðinn umkringi mann en alltaf er maður jafn feginn að vera ekki í þessu holli sem er að yfirgefa þetta líf.

|