mánudagur, maí 24, 2004

Jæja er aðeins að hræra í útlitinu á blessuðu blogginu og vona að ég klúðri þessu ekki algerlega. "#$&& vinnufélagi minn og frændi sem sækir mig á morgnana er alltaf að færa sig upp á skaptið, um daginn var hann eitthvað að flýta sér og lét mig labba í 5 min til að geta hitt hann á Reykjarvíkurveginum svo hann þyrfti ekki að fara inn í hverfið mitt, ok, ég get lifað við það að labba í 5 min klukkan hálf átta á hverjum morgni, en í morgun þá gat hann ekki sótt mig og ég þurfti að fara á línuskautunum í vinnuna. Mér finnst nú svosem alveg gaman á línuskautum, en boy ó boy, ekki klukkan 07:30. Anyways þá vill hann núna að ég mæti bara á línuskautunum í vinnuna á hverjum morgni af því að ég gat það einn dag þá hlít ég að geta það alla daga......(why you cotton picki'n !) Það suckar að hafa ekki bílpróf

|