Það sem ég fíla best við vinnunna sem ég er í núna er hvað strákarnir sem ég vinn með eru ofvirkir, það er alltaf eitthvað að gerast í félagslífinu. Það nýjasta er að við ætlum að taka þátt í kappróðri í Hafnarfjarðarhöfn á sjómannadaginn og stefnum á gullið, þess vegna er ég að fara á róðraræfingu í kvöld og næstu kvöld. Langaði bara að deila þessu með ykkur.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com
fimmtudagur, maí 27, 2004
þriðjudagur, maí 25, 2004
Er svolítið svekktur yfir að fjölmiðlafrumvarpið hafi verið samþykkt og hef ákveðið að ef Óli frá Bessastöðum skrifar undir lögin þá ætli ég ekki að kjósa hann í komandi forsetakosningum. Þarna hafið þið það nú hef ég sagt mína skoðun um það. Ég lenti í svolítið skemmtilegum umræðum í vinnunni í dag sem voru reyndar ekki mjög innihaldsríkar en eftir þessar umræður var komist að þeirri niðurstöðu að ef þú snýrð loftinu við, þá breytist það í þak.
mánudagur, maí 24, 2004
|Jæja er aðeins að hræra í útlitinu á blessuðu blogginu og vona að ég klúðri þessu ekki algerlega. "#$&& vinnufélagi minn og frændi sem sækir mig á morgnana er alltaf að færa sig upp á skaptið, um daginn var hann eitthvað að flýta sér og lét mig labba í 5 min til að geta hitt hann á Reykjarvíkurveginum svo hann þyrfti ekki að fara inn í hverfið mitt, ok, ég get lifað við það að labba í 5 min klukkan hálf átta á hverjum morgni, en í morgun þá gat hann ekki sótt mig og ég þurfti að fara á línuskautunum í vinnuna. Mér finnst nú svosem alveg gaman á línuskautum, en boy ó boy, ekki klukkan 07:30. Anyways þá vill hann núna að ég mæti bara á línuskautunum í vinnuna á hverjum morgni af því að ég gat það einn dag þá hlít ég að geta það alla daga......(why you cotton picki'n !) Það suckar að hafa ekki bílpróf
sunnudagur, maí 23, 2004
Formúla í dag einhver skemmtilegasta keppnin sem haldin hefur verið, alltaf góð keppni í Mónakó, feginn að Skúsmakker fékk ekkert stig. Það verður að vera einhver samkeppni. Það er einhvernveginn eins og það sé létt af manni þungu fargi þegar skammdegið er búið og dagurinn orðinn langur, einhvernveginn léttara yfirbragð yfir öllum. Ég þekkti einusinni danska konu sem bjó hérna á Íslandi í eitt eða tvö ár og hún sagði að Íslendingar væru eins og birnir, svæfu á veturnar og vöknuðu á sumrin. Ég get nú kanski ekki samþykkt það að við sofum á veturnar en það er samt eitthvað aðeinst til í þessu hjá henni. Það er alltaf gaman að skoða sjálfan sig með augum utanaðkomandi.
fimmtudagur, maí 20, 2004
|þriðjudagur, maí 18, 2004
Jæja, einkunnir komnar í hús og gætu mestu nördar alveg verið stoltir af einkunnum eins og þeim sem ég fékk. Hafði svosem engar áhyggjur af þessu. Búinn að vera veikur í nokkra daga núna og er alveg að snappa á því. Fer að vinna aftur á morgun sama hvernig heilsan er vegna þess að ég held að ef ég ligg lengur í rúminu fái ég legursár.
þriðjudagur, maí 11, 2004
Jæja, þá er síðasta prófinu lokið, held að þetta sé allt sloppið fyrir horn. Var að pæla í þessu fjölmiðlafrumvarpi og finnst að það sé svífirðilegt að setja lög á það hvort Pétur eða Páll eigi fjölmiðil, finnst einhvernveginn að allir eigi að geta átt sinn vettvang til að geta komið því fram sem hann vill burtséð frá því hvort hann eða hún eigi hálft Ísland.
föstudagur, maí 07, 2004
Búinn að vera latur að blogga þessa síðustu daga, mikið að gera í vinnunni, vinnan göfgar manninn og allt það. Ég er að vinna við jarðvinnu um þessar mundir og finnst stundum þegar ég er að vinna með öðrum fyrirtækjum eins og það sé einhvers konar keppni milli fyrirtækja hver sé nú mesti vinnukallinn. Ég var spurður að því um daginn hvað ég gerði hjá þessu fyrirtæki sem ég er að vinna hjá og maðurinn rak upp stór augu þegar ég svaraði "sem minnst". Mér finnst vinnan ekkert endilega göfga mig eitthvað, hún gefur mér pening og það er allt og sumt
fimmtudagur, maí 06, 2004
Jæja nú er tölvan loksins komin í lag aftur með nýtt og fíínt stýrikerfi. Allt miklu betra og fínna. Skólinn loksins búinn og ég farinn að vinna, það verður næs að þurfa ekki að lifa undir fátækrarmörkum lengur, en mér finnst ég vera búinn að vera undir þeim síðan ég byrjaði í skólanum, það er sjálfsagt bara fylgifiskur þess að mennta sig, að þurfa að herða sultarólina aðeins áður en maður byrjar að fitna þegar námið er búið.
sunnudagur, maí 02, 2004
Bjór minn vor
Þú sem ert í flösku
Frelsist þinn tappi
Til komi þín froða
Freyði þínir humlar
Svo í glasi sem í munni
Svalaðu í dag mínum daglega þorsta
Og skeyttu ei um vísaskuldir
Svo og líka þyrstunautum mínum
Eigi leið þú oss á nasa
Því þitt er valdið
Gleðin og stuðið
Að eilífu
CARLSBERG
Jæja, setti link á stuttmynd sem ég gerði sem lokaverkefni í skólanum. Hvað er maður eiginlega að gera fyrir framan tölvuna á laugardagskvöldi og skólinn búinn ? Ég held að það sé ekki í lagi með mig. Jæja, ég verð örugglega feginn á morgun.
laugardagur, maí 01, 2004
Krakkar á sykri hafa ábyggilega miklu meira þrek heldur en hermenn í toppþjálfun. Ég var semsagt að koma úr barnaafmæli hjá systir minni, og mér líður eins og ég hafi gengið í gegnum heila vinnuviku á þremur tímum. Barnafólk fær alla mína samúð og aðdáun í dag.
