Jæja, momo setti mig á stað og ýtti mér út í þetta blog, best að reyna að bulla eitthvað, en það er komin alveg brennivínsblíða og ekki eftir neinu að bíða með að fara bara á línuskautum í skólann í dag. Ég er ennþá að setja þessa síðu upp og hún er ekki alveg tilbúin enda ekki alveg búinn að skilja til fullnustu kerfið sem þetta allt er í. Vonast þó til að þetta komi sem fyrst. Helvítis viðgerðarmenn....... ég fékk viðgerðarmann til að kíkja á loftnetið hérna í húsinu og hann sagði að örbylgjuloftnetið væri ónýtt og skipti um það með tilheyrandi kosnaði, allt virkaði miklu betur en áður, svo núna í dag (nokkrum dögum seinna), sést ekki einusinni til sólar í sjónvarpinu, eins og áður. #*%!* viðgerðarmenn geta aldrei gert neitt rétt. Kannski er þetta bara gott af því að maður á ekkert að vera að glápa á þetta sjónvarp í tíma og ótíma.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com

<< Home