fimmtudagur, apríl 29, 2004

Velkominn í þjónustusímann. Ef þú þjáist af...

..þráhyggju, skaltu ýta í sífellu á 1

..ósjálfstæði, skaltu fá einhvern til að ýta á 2

..klofnum persónuleika, skaltu ýta á 3, 4, 5 og 6

..ofsóknarbrjálæði, þá vitum við hver þú ert og hvað þú vilt. Bíddu á línunni svo við getum rakið samtalið

..ranghugmyndum, veldu 7 og við gefum þér samband við móðurskipið

..þunglyndi, þá skiptir ekki máli á hvaða hnapp þú ýtir - það svarar þér enginn hvort eð er

..lesblindu, skaltu velja 696969696969

..taugaveiklun, skaltu fitla við ferninginn þar til einhver svarar

..minnisleysi, skaltu velja 8 og segja nafn þitt, kennitölu, símanúmer, fæðingardag, heimilisfang, skónúmer og fullt nafn móður þinnar

..óákveðni, skaltu skilja eftir skilaboð á eftir tóninum eða á undan tóninum eða á eftir tóninum. Vinsamlega bíðið eftir tóninum.

..skertu skammtímaminni, veldu 9

..skertu skammtímaminni, veldu 9

..skertu skammtímaminni, veldu 9

..skertu skammtímaminni, veldu 9

|

Einusinni var þróasköstur sem sat á límasínu, svo kom kondivallinn með baglahyssu og skaut þróasköstinn niður af límasínunni. Þróaskösturinn datt niður í sprækjalænu og sprækjalænan rann oní hotturolu, og vitið þið hvert hann fór ???.........Hann hollaðist til skrepplands

|


|

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Var að ræða um hækkandi hitastig á jörðinni í dag, hitinn á jörðinni er víst búinn að hækka um 1 gráðu eða svo á síðustu 100 árum.....er ég sá eini sem finnst það ótrúlega stapillt ?

|

Jæja, momo setti mig á stað og ýtti mér út í þetta blog, best að reyna að bulla eitthvað, en það er komin alveg brennivínsblíða og ekki eftir neinu að bíða með að fara bara á línuskautum í skólann í dag. Ég er ennþá að setja þessa síðu upp og hún er ekki alveg tilbúin enda ekki alveg búinn að skilja til fullnustu kerfið sem þetta allt er í. Vonast þó til að þetta komi sem fyrst. Helvítis viðgerðarmenn....... ég fékk viðgerðarmann til að kíkja á loftnetið hérna í húsinu og hann sagði að örbylgjuloftnetið væri ónýtt og skipti um það með tilheyrandi kosnaði, allt virkaði miklu betur en áður, svo núna í dag (nokkrum dögum seinna), sést ekki einusinni til sólar í sjónvarpinu, eins og áður. #*%!&#* viðgerðarmenn geta aldrei gert neitt rétt. Kannski er þetta bara gott af því að maður á ekkert að vera að glápa á þetta sjónvarp í tíma og ótíma.

|