Síðan ég byrjaði hér hjá Mogganum hef ég verið að vinna í kerfi sem eingöngu Mogginn notar (kerfi sem heitir cci) og er ég orðinn nokkuð góður í því. Það er hins vegar upp á teningnum núna að það er verið að fara að flytja mig á milli deilda og láta mig fara að vinna á Qark. Ég hélt nú að þetta væri nú ekkert mál, en staðreyndin er sú að maður ryðgar í því sem maður gerir ekki lengi og það eru búnir að fara 2 morgnar í það að ryfja upp forritið sem ég lærði á í skólanum. Það er nú ágætt að ég er látinn vinna á Qark líka þar sem sveinsprófið fer fram á Qark.
Þið sem eruð á grafísku miðluninni skuluð semsagt nota Qark en ekki gera eins og ég þegar mér fannst það rosa sniðugt að fara að nota InDesign í staðin. Það er nefninlega betra að læra alveg á eitt forrit heldur en smá á tvö.