Ef einhver hérna kann að stilla teljarann, þá eru upplýsingar vel þegnar.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com
fimmtudagur, júlí 28, 2005
|Er að fikta í lúkkinu fyrir bloggið. Breyta og bæta, æi þið skiljið og það duttu allir linkarnir út, en vonandi kemur þetta nú aftur með tíð og tíma. Ég mundi allavegana notendanafnið og lykilorðið að kommentakerfinu ennþá.
Það þýðir þá vonandi það að ég fari að verða duglegri að skrifa eitthvað hérna.
Það birtist í Mogganum í gær fyrsta greinin sem ég skrifa í blaðið, og hvað haldið þið, jú, mér tókst að hafa hana um Simpson fjölskylduna.
miðvikudagur, júlí 27, 2005


föstudagur, júlí 22, 2005
Ok, ég er ekki búnn að vera mikið að blogga vegna þess að meiðslin sem talað er um hér aðeins neðar reyndust vera þrálát og verð ég af þeim sökum að nota einungis eina hönd við að pikka inn. Þetta leiðir til þess að ég er orðinn latur við að pikka inn.
föstudagur, júlí 08, 2005
|miðvikudagur, júlí 06, 2005
Jæja gott fólk, þá er lífið að detta í eðlilegar skorður á ný eftir langa helgi í Danaveldi. Það var bara sól og logn allan tímann og ekkert hægt að kvarta yfir því. Eina sem skyggði kannski á var það að á sunnudagsmorguninn vaknaði ég með hálflamaða hægri hendina (sennilega af vegna þess að ég hef sofið eitthvað vitlaust á henni) og það eru alveg líkur á því að það taki marga mánuði fyrir hana að jafna sig.
Kem með nánari ferðasögu síðar.

