miðvikudagur, júní 29, 2005

Jæja gott fólk, þá er komið að því. Ég er í óða önn að undirbúa ferðalagið. Búinn að pakka boltunum og myndavélinni niður og á bara eftir að fara í sturtu og stökkva í FlyBusinn. Ég á alveg eins von á því að ég komist á netið þarna úti og ef svo verður þá ætla ég að vera með fréttir nokkrum sinnum yfir helgina, þannig að fylgist með.

|

mánudagur, júní 27, 2005

Fór í Skaftafell í úrhellisrigningu um helgina með vinum og það var labbað upp að jökulröndinni og landið skoðað með augum útlendinga þar sem ein dönsk vinkona Sigrúnar vinkonu kom með. Á sunnudeginum var svo pakkað saman tjaldbúðunum og haldið á Kirkjubæjarklaustur þar sem var heitt að vanda. Það er einhvenveginn þannig með Kirkjubæjarklaustur að það er eins og það sé ekki á Íslandi. Þegar við vorum að fara í Skaftafell á Laugardeginum var þoka og rigning alla leiðina nema bara akkúrat þegar við keyrðum í gegnum Kirkjubæjarklaustur, en þar var fínt veður. Jæja búinn að tala nóg um veðrið í bili.

|

föstudagur, júní 24, 2005

Ég veit ekki alveg hvað það er en ég er ekki búinn að vera eins framtakssamur þetta sumarið eins og flest sumur sem á undan eru gengin. Eiginlega er ég bara búinn að vera latur. Það er kannski ekkert verra, enda hefur mig lengi langað í bumbu og kannski verður bara af því núna að ég fái mér svoleiðis. Það er víst ekkert mál.
Annars var fólkið á efri hæðinni að setja risastórt trambolín í garðinn, þannig að það er ekki stundarfriður heima núna sem verður þá aftur á móti kannski til þess að maður drífi sig bara eitthvað þangað til liðið er orðið þreytt á að hoppa, það aftur á móti kemur í veg fyrir bumbusöfnunina.

|

miðvikudagur, júní 08, 2005

Fór í bíó í fyrradag á Hitchikers guide to the galaxy og það er langt síðan ég hef séð aðra eins snilld á hvíta tjaldinu.
Annars er ekkert mikið búið að vera að gerast í lífi mínu þessa dagana og þessvegna ekki frá mörgu að segja.

|

miðvikudagur, júní 01, 2005

Jæja, þá er fyrsti vinnudagurinn að baki á nýjum vinnustað. Þarna er mikið að sem ég þarf að læra, þarf að læra algerlega á forrit sem ég hef ekki einusinni séð áður, en ég held að ég verði ekkert lengi að ná því, allavegana fékk ég að henda þremur greinum út einn og óstuddur seinnipartinn. Leggst vel í mig að fara að vinna þarna. Annar kostur er að þarna er að vinna óendanlegt magn af fallegu kvenfólki og þarna er góður mórall.

Mánuður í Roskilde og hugurinn reikar oft þangað. Sonic Youth, Velvet Revolver, Duran Duran, Black Sabbath, Green Day, Foo Fighters, John Digweed, D.A.D., Brúðarbandið og Mugison eru aðeins örfá nöfn af þeim sem verða að trylla lýðinn þar.

P.S. Hér er linkur fyrir kvikmyndaáhugamenn (Konna t.d.)

|