sunnudagur, október 31, 2004

Setti inn link á acidplanet.com, en þarna er að finna tónlist sem við heyrum hvergi annarsstaðar vegna þess að fæstir þarna eru búnir að meika það. Engu að síður er að finna þarna fullt af fínni tónlist, kíkið endilega þangað ef þið eruð tónlistaráhugamenn.

|

miðvikudagur, október 27, 2004

Stend frammi fyrir svolítði erfiðri ákvörðun þessa dagana sem getur haft áhrif á allavegana nánustu framtíð. Það er nú svosem auðvitað gott stundum að standa frammi fyrir stórum ákvörðunum vegna þess að þá skoðar maður aðeins sjálfan sig og hvað maður er að gera og hvert maður stefnir, það hlýtur að vera gott að gera það svona annað slagið.
Svo þarf ég líka núna á næstu dögum að ákveða hvaða stefnu ég tek í náminu þannig að það má eiginlega segja að ég sé á krossgötum í mínu lífi og vonast til þess að taka rétta beygju og fara ekki yfir á rauðu eins og svo oft áður.....

|

þriðjudagur, október 26, 2004

Vá hvað ég er mættur mikið of snemma í skólann í dag. Alveg er það ótrúlegt að þegar ég mætti í skólann kl. 07:45 þá voru engir íslendingar hérna, aðeis Asíulið. Ætli það sé auðveldara að vakna ef maður er frá Asíu eða hvað er málið eiginlega ?

|

sunnudagur, október 24, 2004

BillyGuiding
Billy Lewis senior: Thu ert forstjori storrar
oliusamsteypu, en hefur lent i vandraedum med
afengi og ert stodugt ad reyna ad sanna thig
fyrir fodur thinum. Thu hefur verid giftur
nokkrum sinnum (m.a. konu sem einnig var gift
fodur thinum og brodur). Thu kludrair
hjonabandinu med astinni thinni vegna drykkju.
Reyndu nu ad gera eitthvad i thinum malum
madur!


Hvada Leidarljos karakter ertu?
brought to you by Quizilla

Ég trúi því ekki hvað ég er mikill nörd og gerði þetta

|

föstudagur, október 22, 2004

LOKSINS........LOKSINS.......KOMINN MEÐ ADSL TENGINGU. VELKOMINN INN Í 21. ÖLDINA JÓNAS. BÚINN AÐ BÍÐA OG BÍÐA EFTIR ÞESSU Í NOKKRAR VIKUR OG DAGURINN Í DAG VARÐ DAGURINN SEM ÞETTA KOM Í GEGN.
FÓR Í SKRÍTNA BAKMYNDATÖKU Í DAG EN HÚN Á AÐ SKERA ÚR UM ÞAÐ HVORT ÉG ÞARF AÐ FARA Í UPPSKURÐ Á BAKI EINHVERTÍMAN FLJÓTLEGA.

PS. ALÞJÓÐLEGI CAPS LOCK DAGURINN ER Í DAG

|

Fór á tónleika í gær með sænskum rokktæfum sem kalla sig Sahara Midnight. Þær voru bara mjög þéttar og kraftmiklar. Mér finnst allaf eitthvað sexy við það að sjá stelpu spila á bassa, held að þetta sé bara svona hálfgert fetish hjá mér. Airwaves hátíðin heldur áfram alla helgina og ég er með armband á hendinni þannig að ég sé fram á ágæta helgi.

|

mánudagur, október 18, 2004

Var ekki duglegur við að vakna í morgun en ég svaf svolítið duglega yfir mig í morgun. Ekkert að draga mig neitt niður fyrir það, enda komst ég að því að það var lítið að gerast í tímunum sem ég átti að vera í.
Helgin var skemmtileg, enda hitti ég fólk sem ég hitti venjulega ekki undir einhverjum djamm formerkjum, bara gaman að því. Lærði reyndar ýmislegt um sjálfan mig og hvernig maður ætti nú frekar að koma fram. Jæja verið að sækja mig.......verð að fara.

|

mánudagur, október 11, 2004

Mætti klukkan 8 í skólann í morgun bara til þess að komast að því að kennarinn minn var veikur og ég þurfi ekkert að mæta fyrr en 13:20 þannig að ég er búinn að hanga hérna í skólanum að gera í raun og veru ekkert, breytti reyndar lookinu á blogginu og svona.
Virðist vera að allir nemendur (allavegana sem ég þekki) hérna í skólanum hafi lagst í fyllerí um helgina, ágætt að vera ekki einn um það svona til tilbreytingar.

|

föstudagur, október 08, 2004

Þegar pabbi kom heim úr vinnunni í gær sagðist hann ætla að fara að leggja sig og spurði mig hvort ég nennti ekki að elda. Þar sem mér finnst nú ekkert leiðinlegt að elda (reyndar er það yfirleitt ég sem elda heima) þá var brunað útí búð og keypt hráefni, eftir að hafa hringt í litlu systir mína og fengið smá faglegar ráðleggingar. Þegar heim var komið var tekið til við að sjóða hrísgrjón, skera sveppina og fiskinn, gera sósuna og rífa ostinn. Draslið var svo allt sett snyrtilega í form og inn í ofn. Þegar að matartímanum kom þá sá ég það eigninlega að metnaðurinn fór kannski of mikið í gæðin í stað þess að pæla aðeins í því hve margir yrðu í mat vegna þess að ég hafði eldað fyrir kannski svona 7 manns, en við vorum bara 2........smakkaðist samt vel.

|

miðvikudagur, október 06, 2004


...........ef ég væri fiskur........

|

Svínakjöt er ekki auðmeltur matur og svið eru klístruð.


|

mánudagur, október 04, 2004



Þarna er ég að taka viðtal við borgarstjórann í skólasjónvarpinu um helgina. Það má nú alveg deila um það hvort þetta var málefnalegt viðtal en viðtal var það allavegana.

|

Skítarok í dag og alveg greinilegt að það er mánudagur. Reyndar er þessi mánudagur búinn að vera í betra lagi, svona af mánudegi að vera.
Komst að því í dag að fréttamenn hjá útvarpinu og sjónvarpinu og líka hjá mogganum gangast undir sérstakt próf þar sem prófuð er svona almenn kunnátta og íslenskunotkun og eitthvað svona og ég var að spá í að taka þetta próf, þetta hljómar eitthvað challenging (sem væri nú reyndar ekki gott að segja ef maður væri að taka þetta próf þar sem þetta er ekki íslenska).

Hrósið mitt í dag fær allt það fólk sem ég umgengst og hvetur mig til að vera betri en ég er.

|

föstudagur, október 01, 2004

Það var algjör letidagur í gær, enda smá bjórsull á miðvikudaginn, en þá var farið á bjórkvöld á Gaukinn með skólasystkinum. Það er einhvernvegin eins og það sé helgi núna, enda er þessi vika búin að vera skrítin í sambandi við skólann, frí annanhvern dag og svona.

|