miðvikudagur, september 29, 2004

Afmælisdagur í dag, búinn að vera fínn dagur. Skólinn bauð öllum uppá pizzur og svo á eftir fór allt stóðið í bíó, ekki amalegt að eiga afmæli í dag og vera í þessum skóla.
Það er eitthvað verið að tala um sukk í kvöld, það verður að koma í ljós en líklega (fyrir þá sem hafa þekkt mig lengur en viku þá vita þeir að það þarf ekkert að tala mig lengi til til að ég fái mér aðeins neðaníðí).
Ætlaði að elda mér eitthvað djúsí í dag en nenni eiginlega ekki að eyða tíma í það núna þannig að eitthvað fljótlegt er málið í dag.

|

fimmtudagur, september 23, 2004

Var að gera tímaritgerð í morgun um það hvernig heimurinn væri ef ekki væru til myndir, athyglisverð pæling, kannski væri Snorra-Edda á Louvre safninu í staðin fyrir Monu Lisu og tónlist væri metin í alvöru út frá verðleikum tónlistamannsins en ekki rassinum eða brjóstunum, anorexia og bullemia væru auðveldari að meðhöndla vegna þess að staðalýmindir væru kannski ekki eins mikils metnar hvað varðar útlit, meiri áhersla væri lögð á ritað mál og fáir Íslendingar myndu vita hvernig gíraffar, fílar, gasellur, híenur og ljón litu út. Kannski væri ímyndurarafl okkar orðið þróaðara þar sem ekki væri allt matað oní okkur með myndum. .......allavegana væri heimurinn öðruvísi en hann er í dag ekkert endilega betri eða verri.

|

laugardagur, september 18, 2004


|

föstudagur, september 17, 2004

Jæja, þá er komin helgi aftur og ekki er víst hvernig ég eyði henni í þetta skiptið en allavegana þarf ég að eyða einum deginum í að rífa parket út úr húsi hjá tengdaforeldrum systur minnar. Vetur konungur er á leiðinni og það er svosem ágætt, vona að maður láti loksins verða af því að fara einhvern tíman á skíði, en ég er búinn að vera á leiðinni á skíði í mörg ár en einhvern veginn verður aldrei af því.
Að allt öðru, ég fór til ömmu í hádeginu í dag, en amma er eitthvað u.þ.b. 85 ára og það var húshjálp hjá henni akkúrat þá. Amma sagði mér að það væri stúlka að þrífa hjá henni núna, svo þegar ég sá hana aðeins seinna þá var þetta ca 60 ára kelling....meiri stúlkan....

|

sunnudagur, september 12, 2004


|

miðvikudagur, september 08, 2004

Fór í þjóðháttarsafnið í dag að skoða þessi blessuðu skinnhandrit sem eru jú okkar arfleið og í þeim eru jú óvéfengnar sannanir þess að það var íslendingur sem fann Ameríku löngu áður en Kristófer Kólumbus fann hana, reyndar finnst mér það alltaf gleymast að hann hélt sig ekki á Íslandi vegna þess að íslendingar vildu ekki hafa hann á landinu og var hann því gerður útlægur frá landinu og þar sem hann gat ekki farið til Noregs þar sem hann hafði eitthvað hellreisað þar líka þá fór hann bara í hina áttina til Grænlands og seinna til Vínlands (þar sem nú er Kanada). Hann var semsagt ótíndur glæpamaður sem enginn vildi hafa nálægt sér, en núna vilja allir að hann sé frá þeim kominn. .......heppinn......

|