Ég veit ekki hvað það er í mér sem gerir það að verkum að það fer alveg gríðarlega í taugarnar á mér þegar kennarar sem eiga að vera að halda fyrirlestur eru að hringla klinki í vasanum hjá sér eða japla á tyggjói. Þetta stríðir einhvernveginn svo á móti öllu sem mér hefur verið kennt og mér finnst að kennarar eigi alls ekki að haga sér svona. Var bara að koma úr svona tíma og varð að fá smá útrás fyrir þetta.
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com
þriðjudagur, ágúst 31, 2004
þriðjudagur, ágúst 24, 2004
Jæja, þá er skólinn byrjaður og það sem mér finnst erfiðast við það er sú staðreynd að þurfa að hanga inni. En samt er þetta mjög skemmtileg fög sem ég er í og eiginlega skemmtilegri en á síðustu önn. Reyndar er ég búinn að sofa yfir mig 2 daga í röð en þetta er ekki það sem koma skal, vona bara að þetta séu bara leifar af menningarnætursleni.
fimmtudagur, ágúst 19, 2004
Var að fá stundatöfluna fyrir veturinn í hendur og er hundfúll með það að hún minnir mig svolítið á gatasigti, en maður verður bara að taka því með jafnaðargeði og æðruleysi. Það eina sem ég kvíði svolítið fyrir í sambandi við það að byrja í skólanum er sú staðreynd að ég þarf að vera inni, en ég er mikil útivera.
Er búinn að vera að æfa mig þvílíkt í jugglinu og ætla að fara á menningarnóttina að juggla niðrí bæ og gá hvort ég fái ekki fyrir skólabókunum bara þannig. Fann alveg snilldarsíðu í því samhengi sem kennir manni held ég bara öll trix í bókinni en hún heitir Ed's Juggling Page, kíkið endilega á hana hún er skemmtileg.
laugardagur, ágúst 07, 2004
| |föstudagur, ágúst 06, 2004
Stutt í að skólinn byrji og allt falli í rólegri farveg heldur en sumarið er búið að vera. Verð að segja að ég hlakka til að byrja í skólanum og fara að spreyta mig á einhverju aðeins meira "challenging" heldur en verkamannavinnu.
þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Jæja, þá er verslunarmannahelgin að baki og var svosem ekkert tíðindarmikil miðað við verslunarmannahelgi, kynntist þó eitthvað af nýju fólki, og held að ég fari ekkert nánar útí það.
Jæja ég held að ég sé búinn með allt vit úr kollinum því að ég get ekki einusinni bullað hérna. Kem með aðra færslu þegar ég er búinn að safna viti.
