þriðjudagur, júlí 27, 2004

Var að pæla í öllu þessu verslunarmannahelgarstússi, allir eru að fara að gera eitthvað eða fara eitthvað eða búinir að taka ákvörðun um að gera ekkert. Ég er að spá í að hafa þessa helgi lítið frábrugðna öðrum helgum, þ.e.a.s. ákveða ekkert og láta bara hlutina ráðast jafnóðum og þeir gerast. Reyndar er ég að fara í sumarfrí þar sem ég er í fríi vikuna eftir helgina og aldrei að vita hvað maður gerir. Engin ákvörðun semsagt tekin um að fara út úr bænum þessa verslunarmannahelgi en ég læt ykkur samt vita um leið og eitthvað gerist.
Var að fatta það að Simpson linkurinn hér fyrir neðan sendir þig bara á þessa síðu aftur, nenni ekki að laga hann, svo er ég líka búinn að tína urlinu.

|

sunnudagur, júlí 25, 2004

Fann snilldarsíðu fyrir alla Simpsons aðdáendur, kíkið endilega þangað.

|

fimmtudagur, júlí 15, 2004

Er farinn að langa til útlanda svolítið mikið þessa dagana, held samt
að ég haldi mig á landinu þetta árið. Skólinn kallar og
kostar sitt. Annars er Iceland Express með alls konar gylliboð
sem eru reyndar á viðráðanlegu verði.

Ég var að pæla í því af hverju rauðhært fólk þolir ekki sól.....hvað er
málið með það ? Ætli rauðhært fólk hafi þróast bara inni hjá sér
og aldrei farið út en síðan hafi einhver komið í heimsókn á þetta
heimili og dregið einhverja út sem blönduðust útifólkinu en enn þann
dag í dag koma upp rauðhærðir einstaklingar í hverri ætt........eða
ekki, allavegana pæling.....

|

laugardagur, júlí 10, 2004

Nett þynnka í gangi núna en það stendur til bóta þar sem ferðinni er heitið á Hard Rock að laga þynnkuna og fóðra sig með gömlum félaga. Reyndar er það félagi sem ég hef haft lítil samskipti við í 20 ár. Skrítið að maður geti sagt svona og munað alveg eftir því sem gerðist fyrir 20 árum. Kannski eru árin bara farin að segja til sín. Áður en maður veit af þarf maður að fara að panta pláss á elliheimili og fá útborgað úr lífeyrissjóðnum og spila bingó og fara í blöðruhálskirtilsaðgerð og kaupa sér skó sem þarf ekki að reima og safna bumbu og húð............eða nei annars það er langt í þetta allt saman......vona ég.....

|

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Jæja, núna er EM búið og maður þarf að fara að finna sér eitthvað annað að gera á kvöldin. Hugmyndir eru vel þegnar. Það er nú svosem ágætt að taka sér frí frá sjónvarpinu þar sem núna er sumar í gangi og besti tími ársins til að vera utandyra.

Núðlusúpur eru ekki góðar lengur þegar maður er búinn að lifa á þeim í nokkur ár, þó að þær séu auðvitað handhægar, fljótlegar og ódýrar.

|

sunnudagur, júlí 04, 2004

Tónleikar í kvöld, Metallica í Egilshöll eins og svo margir aðrir, vildi að þetta væri eitthvað annað kvöld. Þeir hafa ekkert pælt í því að þessir tónleikar eru auðvitað akkúrat á sama tíma og úrslitaleikurinn í EM, en ætli maður verði ekki bara að teipa leikinn þvi ekki er hægt að teipa tónleikana. Annars er helgin búin að vera góð hjá mér, fór í bíó í gærkvöldi og sá Day after tomorrow, ágætis afþreying og ekkert meira.

|