Kominn þriðjudagur og ég er að verða búinn að vinna frá mér allt vit þessa viku, búinn að vinna meira en 20 YFIRVINNUTÍMA á 2 dögum vona bara að það gefi einhvern aukapening í vasann, en svona það sem ég huxa mest um á þessum tíma er Holland - Portúgal leikurinn á morgun. Ég held að það sé enginn sem les þetta bull mitt sem hefur minnsta áhuga á EM en ég ætla samt að bulla um það núna. Ég spái því að Hollendingar fari heim á morgun eftir vítaspyrnukeppni eins og þeir virðast alltaf gera á stórmótum. Ég á ekki von á því að það verði mikið af mörkum skoruð þar sem komið er svona langt inn í keppnina, en ég vona það samt. Settu endilega inn komment ef þú hefur eitthvað að segja um EM í fóbbolta
Velkomin á bullsíðuna mína sendu mér póst MSN addressan mín er: jonasunn@hotmail.com
miðvikudagur, júní 30, 2004
laugardagur, júní 26, 2004
|Vogunn vinnur vounn tapar
annað hvort eða ?
Hér eða þar,
svart eða hvítt ?
Upp eða niður ?
út og suður
útum hvippinn og hvappinn
hérna meiginn eða þarna meiginn?
eða kannski hinumeginn?
WHO CARES ?
IF YOU ARE HAPPY
IT IS OK
NO MATTER HOW IT TURNS...............
fimmtudagur, júní 24, 2004
Fór í Laugardalshöllina í gærkvöldi að sjá gömlu mennina í Deep Purple og það var ekki að heyra á tónlistinni að þeir væru orðnir eitthvað gamlir því að það var bara þrusu kraftur í köllunum. Miði á Metallica kominn í hús og ekkert að vanbúnaði fyrir þá deild. Síðasta færsla ber þess kanski merki að ég komst á netið á djamminu um síðustu helgi og ákvað að setja eina stutta færslu inn og þetta var útkoman.
sunnudagur, júní 20, 2004
|miðvikudagur, júní 16, 2004
|þriðjudagur, júní 15, 2004
|Er að tapa stórfé á þessum úslitum í EM, en vonandi er það að fara að batna, en við í vinnunni komum okkur upp veðbanka um leikina. Eitthvað búið að vera í umræðunni hvor hleypa eigi svörtum konum í íslenska þjóðbúininginn og var þetta í fréttum og blöðum útum allt. Voðaleg gúrkutíð hlítur að vera núna.
mánudagur, júní 14, 2004
Er svolítið upptekinn af fóbbolta þessa daga við misjafnar undirtektir viðstaddra, en það er bara allt í lagi, mér finnst allt í lagi þó ég sökkvi mér oní knattspyrnuna í eina eða tvær vikur á tveggja ára fresti (þ.e. HM og Evrópukeppnina). Það er meira að segja nettur veðmálspottur í vinnunni í gangi og ég vona að það verði enginn með rétta stöðu á morgun þannig að potturinn gangi áfram og stækki og stækki þangað til í úrslitaleiknum. Annars var helgin róleg hjá mér, ég hitti reyndar kærustuna hans pabba í fyrsta skiptið á laugardaginn og finnst hann vera bara búinn að ná sér í ágætis félaga.....gott hjá honum. Eiginlega má segja að pabbi sé meiri hösler en ég.
fimmtudagur, júní 10, 2004
Þetta verður ekki löng færsla hjá mér í dag þar sem það er alveg brennivínsblíða úti og ekkert vert að vera að hanga inni í þessu veðri. Er ekki frá því að maður sé búinn að skipta um ham og kominn yfir á sumar mode, kaffibrúnn og fullur af orku, ég elska Ísland á sumrin, júní, júlí og ágúst eru eiginlega einu mánuðirnir sem er frábært að búa á þessu annars hrjóstruga og kalda landi, en nóg komið ég er farinn í sturtu eftir vinnudaginn og svo verða línuskautar reymaðir á lappir og látið sig renna á vit ævintýranna.
þriðjudagur, júní 08, 2004
Jæja kominn með commentasystem á síðuna eftir beiðni og leiðbeiningum frá sérfróðum, vona að þið notið þetta ekki bara til að segja mér að ég sé bara að bulla og væla heldur líka til að ég sjái að það er einhver sem actually les þetta bull í mér. Annars finn ég að það er farið að síga á seinni hlutann á þessari jákvæðni sem ég er búinn að vera uppfullur af undanfarna daga, er svolítið feginn. Sá fram á það að vera búinn að vinna í dag kl. 5 en var beðinn um að vinna lengur af því að þetta var svo "frábær dagur" mér fundust það reyndar góð rök til þess að vinna ekki lengur en vantar auðvitað alltaf pening þannig að ég lét til leiðast, en ekki hamingjusamlega.
sunnudagur, júní 06, 2004
Jæja, 4. sætið í róðrakeppninni orðið veruleiki, svolítil vonbrigði en engu að síður ágætis árangur, það voru bæ ðe vei 8 lið. Frábær dagur í dag, gott veður, fullt af fólki, og ég hitti bara fólk sem mér finnst skemmtilegt og það var einhvern veginn eins og allir hefðu bara gleymt öllum áhyggjum í einn dag og bara notið sjómannadagsins í veðurblíðunni. Þegar ég var að alast upp var sjómannadagurinn einn af stærri viðburðum ársins og ég hef alltaf haldið svolítið uppá hann vegna þess að þá fóru mamma og pabbi í sitt fínasta púss og fóru niðrí bæ að sýna sig og sjá aðra. Æi, nú er ég bara farinn að bulla, anyways skil ekki hvaðan öll þessi jákvæðni kemur sem ég er að upplifa þessa dagana, best bara að njóta þess meðan það endist.
laugardagur, júní 05, 2004
Fór niðrí bæ í góða veðrinu í gær eftir vinnu og ætlaði að fá mér einn bjór en það endaði á haugafilleríi með u.þ.b. 20 Írum, Írar eru einhvernveginn þannig að það er eins og það sé eitthvað skrítið gen í þeim sem enginn annar hefur, einhverskonar orkugen. Þetta er alveg ótrúlegur kynstofn og svo er líka eins og þeim sé líka bara alveg sama um það sem gerist í kringum þá, geta einhvernveginn gleymt stund, stað og aðstæðum. Þetta kemur örugglega af því að búa svona nálægt Bretum sem auðvitað voru heimsveldi einusinni.
miðvikudagur, júní 02, 2004
Finnst alltaf mjög gaman að lesa fréttir úr öðrum heimsálfum og bera saman hvað vegur þyngst á fólki og sjá menningarlegan mun á okkur öllum.
